26janúar

Wien, Wien nur du allein!

Lífið í Vín gengur sinn vanagang: Söngtímar, lærdómur, söngæfingar, leikfimi, át, vinahittingar og þáttagláp. Bara rosa fínt verð ég að segja! Plan næstu daga er Spa (afslöppun), sauma/prjónaklúbbar og Klassenabend (nemendatónleikar) svo eitthvað sé nefnt. Svo fer auðvitað að líða að Hollandsför, tíminn heldur bara áfram að líða og það virðis alltaf koma manni jafn mikið á óvart.

Ég held áfram að æfa mig í þýskunni, reyni að tala eins og ég get og er nýverið byrjuð að skrifa meira, svaka fjör! Var í búðinni í dag og ætlaði að leyfa manni að fara á undan mér í röðinni og þá asnaðist ég auðvitað til að "du-a" hann. Sagði sem sagt "du kannst" í staðinn fyrir "Sie können" sem er auðvitað argasti dónaskapur hér í Vínarborg. Ég huggaði mig þó við það að ég var þó að hleypa honum framfyrir mig. Hann hlýtur að hafa fyrirgefið mér þessa svakalegu ókurteisi.

Verð líka að segja frá því að ég, Lilja og Abba fórum á Black Swan í bíó á sunnidaginn, rosalega er þetta góð mynd! Mjög áhugverð og einstaklega "spúkí". Hún fékk mig allvega til að hugsa! Og okey, ég skal viðurkenna að ég fékk martröð um nóttina, litla ég sem hélt að myndir hefðu ekki svoleiðis áhrif á mig lengur.

En svona er þetta nú. Ég hef því miður voða lítið að segja og ekki einu sinni myndir til að "pósta". Hlýt að koma með skemmtilegra blogg eftir Hollandsförina, þá verður vonandi frá nógu að segja.

Þangað til næst!

-Halla-
26. janúar 2011 klukkan 23:56
Halla Marinósdóttir
3 athugasemdir
11janúar

Janúar

Já þá er alvaran tekin við enn og aftur...jólin og jólagleðin á Íslandinu góða búin í bili. Ég veit að ég er ekki ein um það en mér finnst janúar oft voða leiðinlegur mánuður. Svo kalt og hráslagalegt úti. Jólafríið búið og skólar og vinna byrja aftur og svo er líka svo langt í vorið, sumarið og góða veðrið. Reyndar er það góða við að vera í Vín þessa önnina að það byrjar að vora aðeins fyrr hérna heldur en á Íslandi. Yfrleitt einhverntíman í mars sem er bara frábært!

En já, ég er semsagt að berjast við sjálfa mig um að vera jákvæð og reyna nú að njóta þessa mánaðar þó að þetta sé nú janúar. Ég og janúar erum sem sagt ekki búin að vera vinir lengi en það er kannski kominn tími til að grafa stríðsöxina? Leiðinlegt að eyða heilum mánuði í eitthvað skammdegisþunglyndi. Já nei takk!





Ég og Janúar



Þangað til næst (sem verður fljótlega, ég lofa)

kv. Halla
11. janúar 2011 klukkan 09:24
Halla Marinósdóttir
3 athugasemdir
08nóvember

Gleði og glens í Vínarborg

Já það er aldeilis kominn tími á nýja bloggfærslu.

Það sem er frásögufærandi frá síðust vikum er t.d. það að Ósk systir kom í heimsókn fyrir rúmri viku og var hjá mér yfir langa helgi! Það var ekkert smá gaman að fá heimsókn og við brölluðum margt skemmtilegt! Við versluðum helling (samt aðallega Ósk sko) ;) og einhverjar jólagjafir og svona. Voða gaman! Svo fórum við að skoða borgina, fórum á Vínartónleika á náttúrusafnið og svo að sjá "Rusalka" í Volksoper. Svo auðvitað borðuðum við góðan mat inn á milli og drukkum hvítín. Rosalega fín og gemütlich (notaleg) helgi! Hérna koma nokkrar vel valdar myndir:



Jább það var sko verslað í H&M!




Systur í Vín :)



Fallega Schönbrunn höllin


Þessi helgi var einnig mjög full af skemmtilegri afþreyingu. Bjórkvöld á föstudaginn hjá Íslendingafélaginu sem endaði í karíóki, en ekki hvað. Svo var mikið spilað á laugardagskvöldinu, mjög svo skemmtilegt! Fékk að kynnast spilinu Catan og verð núna að eignast það fyrir næstu jól. Svo náði ég mér í einhverja leiðinda kvefpest, það má auðvitað ekki hafa svona gaman án þess að það verði einhverjar afleiðingar. En ég er nú öll að koma til, ætla að reyna að fara í söngtíma á morgun!

Ég er búin að gera miklar uppgötvanir á þessum tveimur mánuðum hvað varðar sönginn og röddina mína sem er mjög spennandi. Núna veit ég almennilega hvað er búið að vera að hrjá mig tæknilega og veit hvernig ég á að laga það, loksins! "Bodysinging" er aldeilis skemmtilegt fyrirbæri! Nú er bara mikil vinna framundan! Ég skal ná þessu!!!

Framundan eru jólin og ég get ekki beðið eftir að það verður kveikt á jólaljósunum sem er búið að hengja upp út um allt niðri í bæ. Svo verða líka jólamarkaðir og fleira skemmtilegt þegar nær dregur að jólum. Sverrir er búinn að sýna mér jólasnjóinn heima í gegnum Skype og segist vera búinn að panta snjó fyrir mig þegar ég kem heim í desember. Það bara verður að vera snjór (Góði Guð, viltu vera svo vænn að láta snjóa um jólin heima á Íslandi).

Ætla að enda þetta blogg með mynd sem lýsir mjög vel kvöldunum mínum þegar ég er ein heima



Daimkaka og kertaljós...


Þangað til næst...veriði sæl!
08. nóvember 2010 klukkan 22:33
Halla Marinósdóttir
4 athugasemdir
24október

Vín, borg reykingamanna

Mér finnst svo magnað hvað það reykja margir hérna í Vín. Í fyrrakvöld var ég að bíða eftir Strassenbahn í nokkrar mínútur og ég gat hvergi verið án þess að fá reykinn á mig því það reykti hver og einn einasti sem var þarna að bíða eftir lestinni. Fólkið er heldur ekkert að velta því fyrir sér hvort að það sé að trufla einhverja aðra því það er örugglega mjög sjaldan sem einhver reykir ekki. Ég get ekki að því gert en að láta þetta fara alveg hrikalega í taugarnar á mér. Ég vil geta verið úti án þess að þurfa að kafna í sígarettureyk og síðan angar á manni hárið og fötin eftir smá stund. Svo er auðvitað leyfilegt að reykja inni á flestum kaffihúsum líka.

Ég velti því fyrir mér hvort að stjórnvöld séu ekkert að gera í þessu og hvort að þetta muni bara halda áfram á þessari braut. Eins og þetta sé einhver partur af menningu þeirra sem á ekki að breyta.

En já...fyrir utan þetta er ég bara mjög hress :)

Það gat nú ekki verið að Vín væri fullkomin borg.

Það er bara ein vika eftir af þýskunámskeiðinu og svo kemur Ósk á föstudaginn. Það verður sko gaman! Á þriðjudaginn er líka þjóðhátíðardagur Austurríkis svo það verður forvitnilega að fylgjast með hvernig austurríkismenn halda upp á daginn. Ætli það verði hægt að kaupa "candyfloss" og snuð?

Þangað til næst!

Baba (sem þýðir bæbæ hérna í Austurríki)




24. október 2010 klukkan 14:05
Halla Marinósdóttir
5 athugasemdir
16október

Mánuður!

Jább, þá er ég búin að vera hérna í mánuð...magnað! Það er ýmslegt búið að gerast og ómögulegt að nefna allt svo ég ætla bara að stikla á stóru.

Það gengur mjög vel í söngnáminu. Ég er búin að læra það að þolinmæði er nauðsynleg. Ég vissi það svo sem alveg fyrir en þurfti bara smá "reminder". Það er eins og ég hafi haldið það að flytja hingað myndi bara gera kraftarverk, kviss bamm búmm, og söngtæknin mín er orðin fullkomin! Já óþolinmæðin er svona svakaleg! En það gengur vel svo ég er mjög bjartsýn á framhaldið.

Svo er ég er búin að vera tvær vikur að læra þýsku! Er alla daga vikunnar í þrjá tíma í senn svo þetta er alvöru! Ég finn mun á mér eftir þessar tvær vikur en ég er auðvitað að læra málfræði og orðaforða sem hjálpar mér á endanum að mynda setningar svo ég er bjartsýn á að geta farið að tala meira vonandi fljótlega.

Ég er búin að lenda í því nokkrum sinnum í lyftunni eða úti í búð að fólk (yfirleitt eldra fólk) fer að tala við mig á þýsku (svona "small talk" í röðinni að kassanum og svona) og ég skil það sem þau segja en kann bara ekki alveg að svara þeim á þýsku. Þetta gerir það að verkum að ég svona brosi bara eða segi "ja" og nikka höfðinu svona vandræðalega. Alveg frábær móment!

Fyrstu tvær vikurnar kunni ég ekki að segja orðið "sömuleiðis" á þýsku og lenti allavega tvisvar í því í lyftunni þar sem ég á heima að einhver sagði við mig "schönes Abend" og ég þá stamaði ég bara "danke schön". Ekkert smá skemmtileg að segja ekki sömuleiðis við þetta elskulega fólk. Já svona er ég nú bara dónleg!

Ég reyni að vera duglega að fara í ræktina og um daginn voru þar tvær konur með hundana sína (já það eiga allir hunda í Vín). Þetta væri ekki frásögu færandi nema fyrir það að önnur þeirra var með pínulítinn hund sem vara laus inni í salnum og elti konuna allan tíman meðan hún gerði æfingarna sínar! Ég er auðvitað svo hrifin af dýrum svo mér fannst þetta bara fyndið og eiginlega frekar sætt. Fór að sjá fyrir mér sömu aðstæður í World Class...já einmitt!!! Svo þurfti konan að passa sig allan tímann að stíga ekki á greyið hundinn!

Já það er sko gaman í Vín :-)

Ég skellti mér svo í heimsókn til krakkanna í Salzburg síðust helgi. Maja var svo góð að leyfa mér að gista hjá sér og við vorum aldeilis duglegar að skoða borgina. Alveg æðisleg helgi! Ætla að enda þetta með nokkrum myndum frá ferðinni.



Fórum og fengum okkur dýrindis súkkulaðiköku á föstudagskvöldinu. Aron og Karin hress!



Ég og Maja fórum að skoða kastalann sem stendur á hæðinni með þessu æðislega útsýni yfir borgina.



Fórum í partý á laugardagskvöldið til Hörpu og Halla. Aron og Maja að pósa hérna ;)




Ég var svo heppin að fá að klæðast austurrísku "dirndl" enda var þetta "dirndl" partý! Fjóla líka flott í sínum!


Þangað til næst...

Aufviedersehen!




16. október 2010 klukkan 21:51
Halla Marinósdóttir
7 athugasemdir
28september

Tvær vikur!

Þá eru tvær vikur liðnar en mér finnst í raun eins og ég sé búin að vera hérna mun lengur. Ég er hægt og bítandi að venjast því að búa hérna en verð nú að viðurkenna að ég sakna Íslands stundum sem ég held að sé nú bara eðlilegt! Ég sakna þess aðallega að versla mat á íslandi, það er allt of flókið hérna. Svo sakna ég þess líka að elda í venjulegum ofni en ekki eldgömlum gasofni sem brennir botninn á pizzunni minni! Svo ætla ég ekki einu sinni að byrja að tala um allar 36 sjónvarpsstöðvarnar sem eru næstum allar á þýsku nema BBC entertainment og einstaka þáttur á MTV sem er á ensku...pfff! Heppilegt að ég er með byrgðir til að horfa á í tölvunni ef mér leiðist.

Það er svo auðvitað margt hér sem er ekki á Íslandi. Eins og t.d. H&M (ég kvarta ekki yfir því), tónlistarlífið og menningin sem er alveg einstök. Ég gæti verið á tónleikum eða óperusýningum á hverju kvöldi ef ég vildi! Svo er það líka samgöngukerfið sem er alveg frábært og það er líka hægt að kaupa mjööög ódýrt vín úti í næstu matvöruverslun sem getur verið hentugt! Já, Vínarborg er ekki svo slæm ;)

Ég er búin að taka eftir því að það eru rosalega margir hérna sem reykja og svo eru líka mjög margir sem eiga hunda (hef ekki séð einn einasta kött). Svo er mín reynsla hingað til að fólkið hérna er yfileitt mjög yndælt en ekki "uptide" og dónalegt eins og maður hefur stundum heyrt. En kannski er það bara byrjanda heppni hjá mér...kemur í ljós.

En nóg um það, ætla að setja hérna inn nokkrar myndir frá vikunni sem var að líða.



Þessi er tekin í Kunsthistorishces Museum, pínu óhugnalegt herbergi verð ég að segja en samt flott!




Þarna lá ég um daginn og naut góða veðursins
.




Fannst nú pínu dónalegt að sína ykkur bara tærnar svo að...




Þessi er tekin í Staatsoper, La forza del destino eftir Verdi!



Þar hafið þið það! :)

kv. Halla

28. september 2010 klukkan 20:05
Halla Marinósdóttir
6 athugasemdir
22september

Sumar og sól!

Í kvöld er vika síðan ég kom til Vínar! Mér finnst eiginlega eins og ég sé búin að vera hérna miklu lengur! Ég er búin að koma mér enn betur fyrir og farin að verða flinkari að rata og svona, mjög fínt! Kassinn minn kom líka í gær sem er frábært. Í honum voru sem sagt öll námsgögnin mín (ásamt prjónadóti) svo núna get ég loksins farið að læra að einhverju viti, yes!

Veðrið er búið að vera æðislegt síðustu daga, yfir 20° C og glampandi sól. Ný uppáhaldið mitt er að fara niður í bæ með góða bók og tilla mér á einhvern bekk og lesa.

Þessi staður er æðislegur en hann er á milli Listasafnsins og Náttúrsafnsins en byggingarnar eru líka hrikalega flottar!

Í þessum garði sat ég um helgina, mjög svo notalegt!

Ég er ýmislegt búin að bralla fyrir utan það að sitja einhversstaðar og lesa. Ég fór t.d. að skoða Schönbrunn höllina.

 

Ótrúlega fallegur garður bakvið höllina!

Svo er ég svo heppin að vera búin að kynnast nokkrum íslendingum hér sem er frábært! Fannst ég svolítið mikið ein í heiminum til að byrja með. Ég fór svo í leikfimi í dag með kennaranum mínum (hún bauð mér með, hún er alveg að dekra við mig hérna) og keypti mér 6 mánaða kort! Þetta er lítil stöð fyrir konur rétt hjá blokkinni minni. Núna er eins gott að vera duglegur að hreyfa sig! Ég er svo að vonast til þess að geta farið á 4 vikna þýskunámskeið núna 4. október.

Þessi mynd er tekin hjá Schönbrunn höllinni, allt svæðið í kringum höllina er svona fallegt! Fullkominn staður til að tilla sér með góða bók hehe!

En já, læt þetta duga í bili frá "sumrinu" í Vín.

kv. Halla

 

22. september 2010 klukkan 17:51
Halla Marinósdóttir
8 athugasemdir
17september

Dagur 2

Já þá er dagur tvö að verða liðinn. það mætti halda að ég sé að telja dagana en ég held að það sé nú eðlilegt svona fyrstu dagana!

Ég fór í fyrsta söngtímann minn í morgun og gekk mjög vel! Ég er mjög ánægð með kennarann minn og líst vel á kennsluaðferðirnar hennar. Þær virðast allavega virka mjög vel á mig! Spennandi!

Ég ákvað svo að fara aðeins niður í bæ eftir hádegi og rölta um...þvílíkt mannlíf! Ég var svo hissa að sjá svona marga og það á vinnutíma...er fólk ennþá í fríi eða hvað? Það var þarna maður á torginu með "puppet show" og tónlist og troðið af fólki að horfa á! Þetta er svo ólíkt venjulegum föstudögum í miðbæ Reykjavíkur, allt önnur stemmning. Verst að ég er ekki komi með myndavél en það er allt í vinnslu!

Það er nú ekki margt að segja frá eftir þennan dag...matvöruverslunin sem ég mun koma til með að versla í tekur reyndar ekki kortin mín svo ég mun framvegis þurfa að borga með peningum...pínu bögg en ekkert alvarlegt! Hvaða matvöruverslun tekur ekki kreditkort...pfff! Svo er reyndar pínu pirrandi þegar afgreiðslufólkið talar ekki stakt orð í ensku. Konan á kassanum í búðinni starði bara á mig og sagði ekki orð. Ég fattaði það svo sjálf að kortið virkaði ekki og að ég þyrfti að koma aftur með peninga. Eeeen svo ég sé nú jákvæð þá er ég búin að skrá mig á þýsku námskeið svo ég mun vonandi geta bjargað mér betur á þýsku eftir svona mánuð (námskeiðið byrjar í byrjun Október). Já gleði gleði!

Ég ætla mér svo að vera túristi um helgina og fara á einhver söfn og fleira skemmtilegt! Sá á plakati á lestarstöðinni að það er einhver sýning í Wien Museum um lífið í Vínarborg síðustu 100 ár, myndir og fleira áhugavert. Ætla bókað að skoða það!

Þangað til næst!

kv. Halla
17. september 2010 klukkan 21:20
Halla Marinósdóttir
2 athugasemdir
16september

Vínarborg!

Jæja! Þá er ég flutt til Vínarborgar! Hver hefði trúað því! Veðrið úti er æðislegt, um 18° C og léttskýjað. Það er ótrúlega fallegt útsýni úr íbúðinni minni og núna er sólin farin að lækka á lofti svo að það er svona rómantísk birta úti! Ekki slæmt! Ég myndi taka mynd og láta fylgja með en ég er því miður ekki búin að kaupa mér myndavél...geri það á allra næstu dögum!

Ferðalagið gekk mjög vel í gær. Ég er eiginlega bara hissa hversu vel það gekk! Ég er greinilega svona rosalega góð í að ferðast (einmitt) og var að sjálfsögðu heppin líka. Þetta var mjööög langt ferðalag og var eg því alveg hrikalega fegin þegar ég var komin upp í íbúð í gærkvöldi. Susan (væntanlegi kennarinn minn) sótti mig út á völl sem var frábært og keyrði mig "heim". Íbúðin (sem Susan á) er alveg hrikalega kósý og ég held að það sé barast allt til staðar í henni! Það er ryksuga, straujárn, fatagrind fyrir þvott, örbylgjuofn, sjónvarp, dvd spilari, græjur og meira að segja töfrasproti og djúsvél inni í eldhúsi! Svo er líka sæng og koddi (nokkur eintök meira að segja), handklæði og svo var Susan búin að sauma handa mér ný rúmföt úr gömlum gardínum...þvílíkt sæt!!!! Já ég sé að mér á eftir að líða vel hérna!

Fór út í matvöruverslunina Bipa í dag til að kaupa í matinn, var mjööög lengi þar inni því ég get ekki sagt að ég þekki allt og skilji á þýsku. Keypti mér eina rauðvínsflösku svona til að hafa það kósý skiljiði en nei, hún hrundið auðvitað í gólfið þegar ég var komin heim og splundraðist! Ég kláraði greinilega heppnina á ferðalaginu í gær.

En jæja, ætla að fara að elda mér eitthvað gott! Ætla að reyna að skrifa hérna reglulega og setja inn myndir svo þeir sem vilja geta fylgst með lífinu hér í Vínarborg!

Þangað til næst...

kv. Halla
16. september 2010 klukkan 16:25
Halla Marinósdóttir
3 athugasemdir
05október

Dauð síða??

Jæja, held að ég taki mér smá bloggpásu! Býst ekki við að neinn sé að lesa þetta hvort eð er! Bless í bili!!!

05. október 2009 klukkan 13:19
Halla Marinósdóttir
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Halla Marinósdóttir
  • Staður: Reykjavík

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan